Þrátt fyrir að sumarið sé komið er engu að síður algjör óþarfi að hella sér í algjöra óhollustu. Ég gerði á dögunum uppskrift í samvinnu við Einstök matvara sem er heildsala með það að markmiði að bjóða uppá bragðgóðar og heilsusamlegar vörur. Vörumerki þeirra eru öll lífræn og mörg eru glúteinfrí, án mjólkurvara og vegan. Þeirra á meðal eru vinsælu vörurnar frá RUDE HEALTH.
Vörurnar frá Rude Health samanstanda af hreinum náttúrulegum efnum og eru lausar við allan unnin sykur og erfðabreytt matvæli. Heiti varanna tengist gömlu ensku máltæki sem merkir að vera hress og líta hraustlega út. Fyrir þá sem er umhugað um heilsuna er tilvalið að byrja daginn með vörum frá Rude Health, en þær samanstanda af margs konar múslíi, granóla, hafragrautum, trefjaríku kexi og drykkjarvörum. Rude Health vörurnar fást hér
Mér þykir það alltaf skemmtileg áskorun að gera sælgætisbita úr hollustuvörum (sorrynotsorry)- enda verður maður nú að næra sætu bragðlaukana án þess að missa sig. Þessir uppskrift var einmitt gerð þegar ég þurfti mjög mikið á einhverju sætu að halda. Í hana notaði ég Honey Puffed oats (sem gefa svona “crunchy” bragð) en þeir eru glútenlausir og henta því vel fólki með glútenóþol. Einnig eru þeir trefjaríkir, fyllandi, góðir fyrir kólesterólið og líka fyrir hjartað. Það er óhætt að segja að þessi uppskrift hafi slegið í gegn og ég hvet ykkur til að prufa.
Færslan er unnin í samvinnu við Einstök matvara.
Leave a Reply