Þessi ljúfa er búin að vera í tölvunni í dágóða stund og ég var í raun búin að gleyma þessum virkilega góðu haframjölskökur sem innihalda banana, kókosmjöl og súkkulaðibitum eða rúsínum (jafnvel bæði). Krakkarnir hafa gaman af því að baka þessar því þær taka stutta stund í gerð og eru virkilega bragðgóðar. FYI – það er algjörlega óhætt að tvöfalda þessa.
150 g bananar, stappaðir | |
½ tsk kanill | |
200 g haframjöl | |
40 g kókosmjöl | |
70 g rúsínur eða dökkir súkkulaðidropar | |
60 ml hlynsýróp | |
60 ml ólífuolía |
Leyfið börnunum að hjálpa til við að gera þessar
1. | Blandið öllum hráefnunum mjög vel saman með því að kreista deigið með höndunum eða setjið í matvinnsluvél. |
2. | Mótið deigið í 12 kúlur, setjið á smjörpappír og þrýstið léttilega á þær. |
3. | Bakið í 130°c heitum ofni í um 30 mínútur eða þar til þær eru orðnar gylltar að lit. |
Leave a Reply