2 skarlottlaukar, mjög þunnt sneiddir | |
60 ml balsamik edik | |
60 ml ólífuolía | |
sjávarsalt og svartur pipar | |
50 g furuhnetur | |
1 tsk fínrífinn sítrónubörkur | |
1 cantaloupe melóna | |
8 sneiðar parmaskinka frá PARMA | |
1 tsk sítrónusafi | |
parmesanostur, sneiddur með ostaskera | |
fersk basilíka |
Hinn fullkomni forréttur
1. | Látið skarlottlauk, balsamik edik og ólífuolíu saman í skál. Kryddið með salti og ríflegu magni af svörtum pipar. Geymið í 15 mínútur. |
2. | Hitið 1 msk af ólífuolíu á pönnu og ristið furuhneturnar. Bætið sítrónuberki og klípu af salti. |
3. | Skerið melónuna í sneiðar og raðið á bakka. Setjið parmaskinkuna á bakkann ásamt furuhnetum. Bætið sítrónusafa saman við skarlottlauks-blönduna og dreypið yfir allt. Toppið með parmesan og basilíku. |
Leave a Reply