Þetta er svona “guilty pleasure” réttur sem smellpassar með góðu rauðvínsglasi. Bráðinn mozzarella, sólþurrkaðir tómatar, valhnetur og það sem setur punktin yfir i-ið góð salami. Prufið þennan! Algjört gúrm!   Mozzarella kjúklingur með sólþurrkuðum tómötum, salami og valhnetum Fyrir 4 4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry hunangs grillolía, t.d. frá Caj P. hvítlauksduftsalt og pipar...

Þetta er svona “guilty pleasure” réttur sem smellpassar með góðu rauðvínsglasi. Bráðinn mozzarella, sólþurrkaðir tómatar, valhnetur og það sem setur punktin yfir i-ið góð salami. Prufið þennan!

Algjört gúrm!

 

Mozzarella kjúklingur með sólþurrkuðum tómötum, salami og valhnetum
Fyrir 4
4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
hunangs grillolía, t.d. frá Caj P.
hvítlauksduftsalt og pipar
2 kúlur mozzarellaostur
70 g salami
hakkaðir sólþurrkaðir  tómatar, t.d. frá Paradiso
1 dl valhnetur

Kryddsósa
2 dl sýrður rjómi
1 hvítlauksrif, pressað
fersk steinselja, söxuð
salt og pipar

  1. Penslið ofnfast mót með olíu.
  2. Skerið um þrjá cm skurði í kjúklingabringurnar og setjið í mótið. Penslið kjúklingabringurnar með hunangsgrillolíunni og kryddið með hvítlaukskryddi salti og pipar.  Setjið í 225°c heitan ofn í 10 mínútur. Takið út ofni.
  3. Skerið mozzarellaostinn og salami í sneiðar og setjið í skurðina á kjúklinginum. Stráið hökkuðum sólþurrkaða tómata og saxaðar valhnetur yfir kjúklinginn. Setjið aftur inn í ofn í 25 mínútur.
  4. Gerið kryddsósuna með því að blanda öllu saman og hræra. Gott að láta hana standa aðeins áður en hún er borin fram.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.