Nautataco með sultuðum rauðlauk og kóríandersalsa
by Avistain Kjöt, Kvöldmatur, Mexíkó, Nautakjöt
Erfiðleiki
MiðlungsNautakjöt
2 laukar
4 hvítlauksrif
2 gulrætur
4 stk nautafillet (eða annað nautakjöt)
1 tsk oregano
1 tsk paprikukrydd
2 tsk chipotle eða reykt paprika
2 tsk cumin (ekki kúmen)
1 msk tómatpúrra
500 ml dökkur bjór eða malt
2 dl heitt vatn
1 msk Oscar nautakraftur
1 dós svartar baunir
2 pakkar litlar Mission tortillur
Aðferð: Hitið olíu og smjör í djúpum potti og brúnið kjötið á báðum hliðum. Takið til hliðar og geymið. Saxið laukinn og pressið hvítlauk og gulrætur og steikið í olíu í sama potti og kjötið var í. Bætið kryddum saman við og blandið vel saman. Látið tómatpúrru, bjór/malt og nautakraft (vatn plús kraft) út í pottinn og látið sjóða. Bætið kjötinu í pottinn setjið lok á og látið í 150°c heitan ofn í 3 klst. Hellið vökvanum frá baununum og bætið þeim saman við þegar 15 mínútur eru eftir að eldunartímanum.
Sultaður rauðlaukur
1 stk rauðlaukur
1 dl edik
1 dl hrásykur
Aðferð: Skerið laukinn í þunnar sneiðar. Látið lauk, edik og sykur í pott og hitið þar til sykurinn er bráðinn. Takið af hitanum og látið kólna.
Kóríandersalsa
1 búnt kóríander
2 hvítlauksrif
2 lime
Saxið kóríander og blandið saman við limónusafa og pressuðum hvítlauk.
Leave a Reply