Hér er á ferðinni dásemdar uppskrift að ofnbökuðum kjúklingi í ljúfri beikonsósu. Rétturinn er sérstaklega einfaldur í gerð og slær svo sannarlega í gegn hjá ungum sem öldum. Borinn fram með hrísgrjónum og góðu salati, jafnvel hvítlauksbrauði ef ykkur hugnast það.
Kjúklingaréttur í ljúfri beikonsósu
Ofnbakaður kjúklingur í beikonsósu
600 g kjúklingalundir, t.d. frá Rose Poultry
15 kirsuberjatómatar, helmingaðir
150 g bacon
400 g sýrður rjómi 18-36%
2 tsk paprikukrydd
1/2 tsk reykt paprikukrydd (smoked paprika)
1 tsk cumin (ath ekki kúmen)
150 g rifinn mozzarella
salt og pipar
-
Skerið kjúklinginn í munnbita og setji í ofnfast mót.
-
Setjið kirkjuberjatómatana yfir kjúklinginn. Saltið og piprið.
-
Skerið beikonið í bitaog steikið á pönnu þar til það er meðalstökkt. Bætið þá sýrðum rjóma og kryddum saman við. Látið malla í nokkrar mínútur
-
Hellið beikonsósunni yfir kjúklinginn og látið því næst rifinn ost yfir allt.
-
Bakið við 200°c heitan ofn í um 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og osturinn eilítið brúnaður.
Leave a Reply