Hér er á ferðinni dásemdar uppskrift að ofnbökuðum kjúklingi í ljúfri beikonsósu. Rétturinn er sérstaklega einfaldur í gerð og slær svo sannarlega í gegn hjá ungum sem öldum. Borinn fram með hrísgrjónum og góðu salati, jafnvel hvítlauksbrauði ef ykkur hugnast það.   Kjúklingaréttur í ljúfri beikonsósu   Ofnbakaður kjúklingur í beikonsósu 600 g kjúklingalundir, t.d....

Hér er á ferðinni dásemdar uppskrift að ofnbökuðum kjúklingi í ljúfri beikonsósu. Rétturinn er sérstaklega einfaldur í gerð og slær svo sannarlega í gegn hjá ungum sem öldum. Borinn fram með hrísgrjónum og góðu salati, jafnvel hvítlauksbrauði ef ykkur hugnast það.

 

Kjúklingaréttur í ljúfri beikonsósu

 

Ofnbakaður kjúklingur í beikonsósu
600 g kjúklingalundir, t.d. frá Rose Poultry
15 kirsuberjatómatar, helmingaðir
150 g bacon
400 g sýrður rjómi 18-36%
2 tsk paprikukrydd
1/2 tsk reykt paprikukrydd (smoked paprika)
1 tsk cumin (ath ekki kúmen)
150 g rifinn mozzarella
salt og pipar

  1. Skerið kjúklinginn í munnbita og setji í ofnfast mót.

  2. Setjið kirkjuberjatómatana yfir kjúklinginn. Saltið og piprið.

  3. Skerið beikonið í bitaog steikið á pönnu þar til það er meðalstökkt. Bætið þá sýrðum rjóma og kryddum saman við. Látið malla í nokkrar mínútur

  4. Hellið beikonsósunni yfir kjúklinginn og látið því næst rifinn ost yfir allt.

  5. Bakið við 200°c heitan ofn í um 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og osturinn eilítið brúnaður.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.