Mexíkóskur matur er alltaf jafn góður og á mínu heimili var kominn tími á klassískar tortillur með fullt af grænmeti og góðum kjúklingi. Ég rakst á spennandi uppskrift þar sem kallaði á mig en þar var einfaldleikinn í fyrirrúmi og ég hreinlega varð að prufa. Hér er grænmeti og kjúklingi blandað saman í ofnfast mót með heimagerðu mexíkókryddi og olíu þetta ofnbakað og að lokum er límónu kreist yfir allt. Það er sko óhætt að segja að þessi máltíð hafi slegið í gegn og verið óvænt veisla á mánudegi (soðin ýsa hvað ;). Með þessu bar ég fram sýrðan rjóma, salsasósu og heimagerðu guagamole frá gestabloggaranum Kára Gunnars sem ég vil meina að sé það allra besta í heiminum. Hér er á ferðinni máltíð sem er einföld og bragðgóð og ég mæli með því að þið prufið.
Ofnbökuð fajitas veisla
Mexíkókrydd
1 msk chiliduft
1/2 msk paprikuduft
1/2 tsk laukduft
1/4 tsk hvítlauksduft
1/4 tsk cumin
1/8 tsk cayenne pipar
1 tsk sykur
1/2 tsk salt
1/2 msk sterkja (t.d. hveiti)
Fajitas
2 laukar, skornir í sneiðar
2 grænar paprikur, skornar í strimla
1 rauð paprika, skorin í strimla
500 g kjúklingabringur, skornar í litla bita
2 msk grænmetisolía
1/2 lime
8 tortillur
- Blandið öllum hráefnunum fyrir mexíkókryddið saman í skál og geymið.
- Látið grænmetið og kjúklinginn í ofnfast mót og hellið mexíkókryddinu yfir og hellið síðan olíunni yfir allt og blandið öllu vel saman.
- Bakið í 200°c heitum ofni í 30 – 35 mínútur og hrærið af og til í blöndunni. Þegar þetta er tilbúið takið úr ofninum og kreistið safa úr hálfri lime yfir allt.
- Berið fram með t.d. rifnum osti, salsa, guagamole, kóríander og eða því sem hugurinn girnist.
Leave a Reply