Nautakjöt með hvítlauksostafyllingu – jafn gott og það hljómar.
Nautavefja með hvítlauksostafyllingu
Styrkt færsla
Fyrir 2-3
600 g nautakjöt
200 g rjómaostur, t.d. Philadelphia classic
2 dl 18 % sýrður rjómi, td. frá Mjólka
2-3 hvítlauksrif, pressuð
salt og pipar
timían
- Blandið rjómaosti, sýrðum rjóma og hvítlauksrifjum saman í skál og hrærið vel.
- Fletjið nautakjötið út svo það verði þynnra.
- Saltið og piprið og látið ostafyllinguna í miðjuna á kjötinu og rúllið upp. Stráið timían yfir kjötið og setjið í 200°c heitan ofn í 3-5 mínútur. Berið fram með kartöflubátum, sósu og góðu salati.
Leave a Reply