Skerið rababarann í 2 cm bita. Látið í pott ásamt sykri, sítrónusafa og vatni. Látið malla við vægan hita þar til sykurinn er bráðinn og rabararinn farinn að mýkjast. Kælið.
Ostaköku krem
400 g Philadelphia rjómaostur
1 1/2 dl rjómi
1 1/2 dl flórsykur
2 tsk vanillusykur
safi úr 1 límónu (lime)
Hrærið rjómaost og rjóma saman. Bætið flórsykri, vanillusykri og safa í 1 límónu saman við. Hrærið þar til kremið hefur þykknað.
Annað
100 g hvítt Toblerone
LU Digestive classic hafrakex
Myljið hafrakex í botn á fjórum skálum. Látið ostakökukrem yfir og rababarasósu yfir það. Myljið hafrakex yfir rababarasósuna. Látið ostakökukrem næst yfir og endið á að láta saxað hvítt Toblerone yfir allt og berið fram.
Leave a Reply