Innihaldslýsing

2 fernur Oatly súkkulaðimjólk
1/2 bolli chia fræ
2 msk kakó
2-3 msk hlynsíróp, mjög auðvelt að stjórna þessu og smakka til
1/4 tsk sjávarsalt
2 tsk vanilludropar
Þeyttur Oatly visp hafrarjómi + súkkulaðispænir
Þessi er ansi langt frá gamla pakkabúðingnum sem við þekkjum mörg en hann er ekki mikið flóknari samt! Örfá hráefni og smá tími er allt sem þarf. Það er alveg ótrúlegt hvað er hægt að gera með chia fræjum og haframjólk nefnilega. Svo styttum við okkur enn leið og notum súkkulaði haframjólk, hversu mikil snilld!...

Leiðbeiningar

1.Setjið öll innihaldsefni í blandara og vinnið þar til búðingurinn er farinn að þykkna og þið finnið lítið sem ekkert fyrir fræjunum. Búðinginn er auðvelt að smakka til, bæta kakói, sætu, vanillu eða hverju sem ykkur dettur í hug.
2.Setjið í ílát og kælið í að minnsta kosti í 1 klst. Hægt er að frysta afganga en geymist í kæli í 4-5 daga og því hægt að gera hann með góðum fyrirvara.
3.Toppið með þeyttum hafrarjóma og rifnu súkkulaði ef vill.

Þessi er ansi langt frá gamla pakkabúðingnum sem við þekkjum mörg en hann er ekki mikið flóknari samt! Örfá hráefni og smá tími er allt sem þarf. Það er alveg ótrúlegt hvað er hægt að gera með chia fræjum og haframjólk nefnilega. Svo styttum við okkur enn leið og notum súkkulaði haframjólk, hversu mikil snilld! Krakkarnir elska þennan ekkert síður en við hjónin. Við toppum hann með þeyttum Oatly visp hafrarjóma en það er auðvitað smekksatriði, okkur finnst hann verða extra gúrm þannig.

 

Chocolate Oat Drink Junior | Oatly

 

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.