Taco pasta er svona réttur sem klikkar eiginlega ekki. Enginn fussar yfir þessu við matarborðið og allir borða með bestu lyst. Fyrirhöfnin er lítil sem engin og jafnvel hægt að láta krakkana elda þennan rétt ef fullorðna fólkið vill hvílast. Hér er allt sett i einn pott svo uppvaskið er í lágmarki. Það mælir semsagt allt með því að þið prufið þennan rétt.
2 msk olía | |
1 laukur, saxaður | |
500 g nautahakk | |
1 bréf taco krydd | |
5 dl vatn | |
2 dl mild salsasósa | |
250 g pasta, t.d. farfelle | |
150 g mossarellaostur eða cheddar, rifinn |
Taco pasta er svona réttur sem klikkar eiginlega ekki. Enginn fussar yfir þessu við matarborðið og allir borða með bestu lyst. Fyrirhöfnin er lítil sem engin og jafnvel hægt að láta krakkana elda þennan rétt ef fullorðna fólkið vill hvílast. Hér er allt sett i einn pott svo uppvaskið er í lágmarki. Það mælir semsagt...
1. | Setjið olíu í pott og hitið. |
2. | Steikið laukinn þar til hann er orðinn glær og bætið þá nautakjötinu saman við og brúnið. |
3. | Setjið taco krydd, salsa sósu og vatn í pottinn og blandið vel saman. |
4. | Bætið pasta saman við og látið malla við vægan hita í 10-15 mínútur eða þar til pastað er fullsoðið. Setjið að lokum ostinn saman við. |
5. | Skerið grænmetið, myljið nachos og látið það og sýrðan rjóma í skálar. Berið fram með þessum gómsæta pastarétti þar sem hver fær sér meðlæti að eigin smekk. |
Leave a Reply