Skinkusnúðar með rjómaostafyllingu
Snúðar
5 dl vatn
1 bréf þurrger
1 tsk hunang
3 msk ólífuolía
2 tsk salt
700 g hveiti
Setjið ger í fingurvolgt vatn. Látið hin hráefnin í skál ásamt gervatninu og hnoðið. Látið hefast með rökum klút yfir skálinni í að minnsta kosti 30 mínútur. Látið á hveitistráð borð, hnoðið og fletjið út í ca. 55 x 35 cm. Smyrjið með rjómaostblöndunni og stráið skinkustrimlum yfir. Leggið styttri hlutann yfir hinn og skerið niður í 2-3 cm sneiðar. Gerið hnút og snúið upp á hvern strimil. Látið á bökunarplötu og látið hefast í um 20 mínútur. Bakið í 200°c heitum ofni í 20 mínútur.
Rjómaostafylling
200 g Philadelphia rjómaostur
2 tsk dijon sinnep
200 g skinka
salt og pipar
Setjið hráefnin saman í skál og blandið vel saman. Smakkið til með salti og pipar.
Leave a Reply