Leit minni af einföldum, fljótlegum en um leið virkilega bragðgóðum súkkulaðimuffins er lokið. Þessar slógu í gegn hjá mér og öllum fjölskyldumeðlimum og verða bakaðar mjög fljótlega aftur. Þessar eru flottar í barnaafmælið, veisluna og lautarferðina – svo eitthvað sé nefnt.
100 g súkkulaði, saxað | |
250 g hveiti | |
225 g hrásykur (eða púðusykur) | |
50 g kakó | |
1 tsk vanillusykur | |
1 tsk matarsódi (natron) | |
100 g smjör, brætt | |
3,75 dl ab mjólk, t.d. frá Mjólka | |
1 egg |
Styrkt færsla
1. | Blandið öllum þurru hráefnunum saman í skál ásamt og 2/3 af súkkulaðinu |
2. | Í aðra skál blandið öllum blautu hráefnunum saman og hellið síðan saman við þurrefnin og hrærið þar til allt hefur blandast saman en ekki of lengi. |
3. | Skiptið deiginu niður á 12 muffins form og stráið súkkulaðinu yfir. |
4. | Bakið í 200°c heitum ofni í 13-15 mínútur. |
Leave a Reply