Ef ég ætti að nefna einn af mínum uppáhalds réttum væri það klárlega þessi. Sushipitsa kemur frá veitingastaðnum Rub23 og ég man þegar ég bragðaði hann fyrst á Akureyri fyrir mörgum árum. Sú upplifun var algjörlega ólýsanleg!
Uppskriftin að sushipítsunni birtist í Morgunblaðinu þann 17. febrúar á þessu ári og hreinlega öskraði á mig. Heppin við að hafa fengið að njóta þessarar uppskriftar og geta núna boðið upp á þennan dásemdar forrétt/smárrétt í heimahúsi.
Hráefnin undirbúin
Búin að dýfa sushinu í tempura deig
Það síðan djúpsteikt
Algjört uppáhald!
Sushipítsa í forrétt fyrir fjóra
Sushipítsubotn
2 noriblöð
100 g sushigrjón (soðin)
Tempuradeig; fæst líka víða sem duft sem vatni er blandað saman við
Aðferð
- Setjið grjónin á annað noriblaðið þannig að það sé alveg hulið, leggið síðan hitt noriblaðið ofan á grjónin og pressið létt með höndunum, skerið í fjóra hluta, dýfið síðan í tempuradeigið og djúpsteikið.
Bleikjutartar á sushipítsu
100 g bleikja, fínt skorin
1 tsk kryddjurtamauk (steinselja, kóríander, basilíka)
1 tsk mangó-chilí-sulta
½ tsk hvítlauksolía
Aðferð
- Öllum hráefnunum blandað saman og sett ofan á djúpsteikta sushipítsubotninn.
- Pítsan er síðan toppuð með chilimajonesi, sætri sojasósu, vorlauk og rauðri papriku.
Nokkur atriði áður en hafist er handa
- Ekki láta of þykkt lag af hrísgrjónum á noriblaðið.
- Það skiptir engu þó þið eigið ekki mangó- eða chillí sultu. Þið getið í staðinn skorið mangó og chillí smátt og blandað saman við laxinn.
- Chillímajones geri þið með því að blanda saman majonesi og chillí paste (t.d. sambal olek).
- Til að djúpsteikja þarf engar sérgræjur. Ég notaði venjulegan pott og Wesson olíu.
Leave a Reply