Við elskum hreinlega þessar dásamlegu fiskibollur sem kallast “Tod man pla” og henta vel í léttan hádegis eða kvöldverð en er einnig skemmtilegt sem forréttur. Borið fram með dásemdar heimagerðri chilísósu sem mun vekja mikla lukku.   “Tod Man Pla”   Tælenskar fiskibollur með ómótstæðilegri chilísósu 400 g laxaflök, roðlaus (eða fiskur að eigin vali)...

Við elskum hreinlega þessar dásamlegu fiskibollur sem kallast “Tod man pla” og henta vel í léttan hádegis eða kvöldverð en er einnig skemmtilegt sem forréttur. Borið fram með dásemdar heimagerðri chilísósu sem mun vekja mikla lukku.

 

“Tod Man Pla”

 

Tælenskar fiskibollur með ómótstæðilegri chilísósu
400 g laxaflök, roðlaus (eða fiskur að eigin vali)
1 egg
3-4 vorlaukar, saxaðir
1 msk fiskisósa, t.d. Fish sauce frá Blue dragon
2 tsk rautt karrýmauk, t.d. Red curry paste frá Blue dragon
1/2 rautt chilí, smátt skorið
handfylli kóríander, saxað

Chilí sósa
5 msk hrisgrjónaedik, t.d. Rice vinegar frá Blue dragon
50 g sykur
2 msk vatn
3 rauð chilí, heil

 

  1. Saxið laxinn og blandið öllum hráefnunum fyrir bollurnar vel saman.
  2. Mótið um 10-12 bollur, gott að nota tvær matskeiðar.
  3. Hitið steikingarolíu á pönnu þar til hún er orðin vel heit. Steikið fiskibollurnar í 2-3 mínútur eða þar til gylltar að lit. Þerrið á eldhúspappír.
  4. Gerið chilí sósuna með því að blanda hrísgrjónaediki, sykri, vatni og chilí saman í lítinn pott og hitið. Látið malla í 15 mínútur og takið þá af hitanum. Setjið í matvinnsluvél og maukið vel.
  5. Síið blönduna að frátalinni 1 tsk af chilíblöndunni og blandið því saman við síjaða chilímaukið.
  6. Berið tælensku fiskikökunar fram með chilísósu, agúrkum og salthnetum.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.