Frábær karrý kjúklingaréttur með kókosnúðlum

Home / Fljótlegt / Frábær karrý kjúklingaréttur með kókosnúðlum

Erum við ekki alltaf í leit að réttum sem eru einfaldir, fljótlegir, næringarríkir og dásamlega bragðgóðir. Hér er einn sem er í miklu uppáhaldi enda algjörlega frábær. Dömur mínar og herrar leyfið okkur að kynna karrý kjúklingarétt með kókosnúðlum.

Ómótstæðilegur karrý kjúlingaréttur með kókosnúðlum – vörur úr versluninni Snúran

 

Karrý kjúklingur með kókosnúðlum
700 g kjúklingalæri eða lundir frá t.d. Rose Poultry
4 msk ólífuolía
2 msk sítrónusafi
2 hvítlauksrif, smátt söxuð
6 tsk karrý
2 tsk hunang
1 laukur, skorinn í teninga
1/2 – 1 brokkolíhaus, smátt skorinn
2 gulrætur, skornar í strimla
250 g eggjanúðlur frá Blue dragon
2-3 dl kókosmjólk frá Blue dragon

  1. Skerið kjúklinginn í litla munnbita.
  2. Gerið marineringu með því að blanda olíu, sítrónusafa, hvítlauk, karrý og hunangi saman í skál og smakkið til með salti og pipar. Setjið kjúklinginn í marineringuna og blandið vel saman. Látið helst marinerast í kæli í um 2 klst eða eins lengi og tími vinnst til.
  3. Takið kjúklinginn úr marineringunni og steikið á pönnu. Bætið við olíu ef kjúklingurinn festist við pönnuna.
  4. Takið kjúklinginn af og setjið laukinn út á og léttsteikið. Bætið því næst grænmetinu saman við og steikið í smá stund.
  5. Bætið kókosmjólkinni út í  ásamt ósoðnum eggjanúðlunum og látið malla í um 5 mínútur * Einnig er hægt að sjóða þær sér og bæta síðan úti. Gæti verið einfaldara.  Hrærið reglulega í blöndunni þannig að núðlurnar taki í sig vökvann.

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.