Pastasalatið sem allir elska

Home / Fljótlegt / Pastasalatið sem allir elska

Hér er á ferðinni uppskrift að frábæru pastasalati sem mun nú líklegast slá í gegn hjá flestum sem það bragða. Uppskriftin inniheldur góðgæti eins og kjúkling, penne pasta, stökkt beikon, parmesan, pestó, hvítlauk og rjóma ofrv. Það er borið fram kalt og hentar vel í veislur og mannfögnuði þar sem þarf að metta marga munna. Það er sérstaklega einfalt í gerð þar sem öllu er einfaldlega blandað saman áður en þess er notið.

 

Pastasalatið sem allir elska

Pastasalat með kjúklingi, beikoni og parmesan
400 g penne pasta
1 pakki beikon
2 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry, fulleldaðar
50 g furuhnetur, ristaðar
1 dós sýrður rjómi
1/2 rauð paprika, skorin í litla teninga
1/3 púrrulaukur (notið aðeins hvíta hlutann), skorin í sneiðar
2 hvítlauksrif, söxuð smátt
50-100 g parmesanostur, rifinn
1/4 icebergsalat, niðurskorið
2 msk grænt pestó, t.d. frá Filippo Berio
1/2 tsk safi úr ferskri sítrónu
1/2 dl rjómi
salt og pipar

  1. Eldið pastað skv. leiðbeiningum á pakkninu og kælið lítillega.
  2. Skerið beikonið í litla bita og steikið.
  3. Rífið eldaðar kjúklingabringur niður í litla bita.
  4. Blandið síðan sýrðum rjóma, sítrónusafa, pestó og rjóma saman og hrærið vel.
  5. Blandið öllu saman í stóra skál og saltið og piprið ríflega.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.