

| 700 g kjúklingalæri, frá Rose Poultry | |
| 4 tsk sætt sinnep, frá HEINZ | |
| 2 msk hunang | |
| 1 tsk salt | |
| 4 msk ólífuolía | |
| 2 msk þurrkað timían |
Fyrir 4
| 1. | Blandið öllum hráefnum að kjúklingnum frátöldum saman í skál og hrærið vel saman. |
| 2. | Setjið kjúklinginn í poka með rennilási og hellið marineringunni saman við og nuddið henni vel í kjúklinginn. Marinerið í ísskáp eins lengi og tíminn leyfir (gott að útbúa kvöldinu áður). |
| 3. | Setjið í ofnfast mót og eldið við 190°c í 35-40 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. |

Leave a Reply