

| 800 g nautakjöt, t.d. innra læri eða ribey | |
| 1 laukur, skipt í tvennt | |
| 3 hvítlauksrif | |
| 1/2 pera | |
| 1 vorlaukur | |
| 3 msk púðursykur | |
| 1 tsk svartur pipar | |
| 80 ml sojasósa frá Blue dragon | |
| 3 msk sesamolía frá Blue dragon | |
| 1-2 msk steikingarolía | |
| sesamfræ til skrauts | |
| vorlaukur til skrauts |
Fyrir 2-3
| 1. | Skerið kjötið niður í þunna strimla og setjið í skál. Ef kjötið er sett í frysti í smá stund er auðveldara að skera það þunnt. |
| 2. | Setjið vorlauk, 1/2 lauk, hvítlauksrif, peru, púðursykur, sojasósu og sesamolíu í blandara og maukið vel saman. |
| 3. | Skerið hinn helminginn af lauknum í þunnar sneiðar og setjið saman við kjötið. Hellið marineringunni saman við kjötið og blandið vel saman. Marinerið í kæli í 30 mínútur eða meira ef tími er til. |
| 4. | Hitið olíu á pönnu og þerrið strimlana. Steikið við háan hita. |
| 5. | Takið af pönnunni og stráið ristuðum sesamfræjum og vorlauk yfir. Berið fram með hrísgrjónum. |

Leave a Reply