

| 500 g nautahakk | |
| 500 g svínahakk | |
| 1 laukur, saxaður | |
| 2-3 gulrætur, smátt saxaðar (má sleppa eða bæta við grænmeti að eigin vali) | |
| 5 hvítlauksrif, pressuð | |
| 800 g tómatar í dós, maukaðir | |
| 170 g tómat paste | |
| 400 g tómat passata | |
| 120 ml hvítvín | |
| 2 msk sykur | |
| 1 lúka fersk basilíka, söxuð | |
| 1 tsk fennel fræ | |
| 1 tsk þurrkað oregano | |
| 1/2 tsk salt | |
| 1/2 tsk svartur pipar | |
| 1/4 búnt fersk steinselja, söxuð | |
| 500 g lasagnaplötur, helst ferskar | |
| 850 g ricotta ostur (má nota kotasælu) | |
| 2 msk fersk steinselja, söxuð | |
| 1 stórt egg | |
| 1/2 tsk salt | |
| 1/4 tsk múskat | |
| 500 g ferskur mozzarella, skorinn í sneiðar (má nota rifinn þó ferskur sé betri) | |
| parmesanostur, rifinn |
Fyrir 6
| 1. | Steikið hakkið í stórum potti og bætið lauk og hvítlauk saman við. Steikið þar til kjötið er farið að brúnast og hrærið stöðugt í því. |
| 2. | Bætið sykri, ferskri basilíku, fennel, oregano, salti, pipar og steinselju. |
| 3. | Hellið næst maukuðu tómötum, tómat púrru, tómat passata og hvítvíni út í pottinn. Hitið að suðu. Lækkið þá hitann niður í lægstu stillingu og látið malla í 1-4 klst. |
| 4. | Setjið ricotta (kotasælu), egg, steinselju, salt og múskat saman í skál og blandið vel saman. |
| 5. | Setjið um 2-3 dl af kjötsósunni í eldfast mót. Setjið lasagnaplötur yfir. |
| 6. | Látið 1/3 af ricotta blöndunni yfir og því næst mozzarella. |
| 7. | Látið 3-4 dl af kjötsósunni yfir mozzarella og stráið parmesan yfir. |
| 8. | Endurtakið þetta tvisvar til viðbótar. |
| 9. | Endið á að setja kjötsósu yfir pasta, þá mozzarella og að lokum parmesan. |
| 10. | Setjið álpappír yfir mótið og látið í 200°c heitan ofn í 30 mínútur. |
| 11. | Takið álpappírinn af og eldið í 25 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gylltur. |

Leave a Reply