Innihaldslýsing

500 g nautahakk
500 g svínahakk
1 laukur, saxaður
2-3 gulrætur, smátt saxaðar (má sleppa eða bæta við grænmeti að eigin vali)
5 hvítlauksrif, pressuð
800 g tómatar í dós, maukaðir
170 g tómat paste
400 g tómat passata
120 ml hvítvín
2 msk sykur
1 lúka fersk basilíka, söxuð
1 tsk fennel fræ
1 tsk þurrkað oregano
1/2 tsk salt
1/2 tsk svartur pipar
1/4 búnt fersk steinselja, söxuð
500 g lasagnaplötur, helst ferskar
850 g ricotta ostur (má nota kotasælu)
2 msk fersk steinselja, söxuð
1 stórt egg
1/2 tsk salt
1/4 tsk múskat
500 g ferskur mozzarella, skorinn í sneiðar (má nota rifinn þó ferskur sé betri)
parmesanostur, rifinn
Fyrir 6

Leiðbeiningar

1.Steikið hakkið í stórum potti og bætið lauk og hvítlauk saman við. Steikið þar til kjötið er farið að brúnast og hrærið stöðugt í því.
2.Bætið sykri, ferskri basilíku, fennel, oregano, salti, pipar og steinselju.
3.Hellið næst maukuðu tómötum, tómat púrru, tómat passata og hvítvíni út í pottinn. Hitið að suðu. Lækkið þá hitann niður í lægstu stillingu og látið malla í 1-4 klst.
4.Setjið ricotta (kotasælu), egg, steinselju, salt og múskat saman í skál og blandið vel saman.
5.Setjið um 2-3 dl af kjötsósunni í eldfast mót. Setjið lasagnaplötur yfir.
6.Látið 1/3 af ricotta blöndunni yfir og því næst mozzarella.
7.Látið 3-4 dl af kjötsósunni yfir mozzarella og stráið parmesan yfir.
8.Endurtakið þetta tvisvar til viðbótar.
9.Endið á að setja kjötsósu yfir pasta, þá mozzarella og að lokum parmesan.
10.Setjið álpappír yfir mótið og látið í 200°c heitan ofn í 30 mínútur.
11.Takið álpappírinn af og eldið í 25 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gylltur.
Lasagna eins og það gerist best

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.