

| 3 kjúklingabringur | |
| 300 g hrísgrjónanúðlur | |
| 1 laukur, skorinn í þunnar sneiðar | |
| 3 vorlaukar, sneiddir þunnt | |
| 3 egg | |
| 1/2 - 1 dl baunaspírur | |
| salthnetur, saxaðar smátt | |
| ferskt kóríander (má sleppa) |
Þessi réttur er fullkominn í afganga daginn eftir. En það er sjaldnast eitthvað eftir. Þetta er svo gott!
| 1. | Sjóðið núðlurnar skv leiðbeiningum á pakkningu. |
| 2. | Skerið kjúklingabringurnar niður í þunnar sneiðar. Hitið olíu í potti og steikið kjúklinginn og lauk þar til kjúklingurinn er rétt eldaður í gegn. |
| 3. | Takið kjúklinginn til hliðar á pönnunni og setjið eggin á hina hliðina. Hrærið í þeim þar til þau eru elduð og blandið þá saman við kjúklinginn. |
| 4. | Setjið núðlur, vorlauk og baunaspírur saman við. |
| 5. | Gerið sósuna og hellið yfir allt. Steikið í nokkrar mínútur og blandið öllu vel saman. |
| 6. | Setjið á disk og stráið muldum salthnetum og kóríander yfir allt. |

Leave a Reply