

| 180 g OTA haframjöl | |
| 120 g rúsínur | |
| 300 g möndlusmjör | |
| 80 ml hlynsíróp | |
| klípa af salti | |
| 1 tsk kanill | |
| 1 tsk vanilludropar |
| 1. | Hitið möndlusmjör og hlynsíróp saman í potti yfir vægum hita. Takið af hitanum þegar möndlusmjörið er orðið mjúkt og þetta hefur blandast saman. |
| 2. | Látið í hrærivélaskál ásamt hinum hráefnunum og hrærið saman. |
| 3. | Takið deigið með matskeið og mótið í kúlu. Látið á smjörpappír og þrýstið á kúlurnar þannig að þær fletjist út. |
| 4. | Þessar kökur þarf ekki að baka heldur má láta þær harðna lítillega í kæli. Hinsvegar ef þið viljið hita þær örlítið þá er það í lagi. Látið í 180°c heitan ofn í 5 mínútur. |

Leave a Reply