Innihaldslýsing

4 msk Cadbury kakó
4 msk hlynsíróp
1 msk vanilludropar
1 dós (400 ml) Blue dragon kókosmjólk
50 g chia fræ
vatn eftir þörfum
Fyrir 2

Leiðbeiningar

1.Sigtið kakóið og látið í skál ásamt hlynsírópi. Hrærið vel saman.
2.Bætið kókosmjólk, vanilludropum og chiafræjum saman við og blandið vel saman.
3.Látið standa í 5 mínútur og hrærið þá í chia grautnum. Setjið í ísskáp í nokkra klukkutíma eða yfir nótt.
4.Berið fram með ávöxtum, fræjum, hnetum, kókosflögum eða því sem hugurinn girnist.
5.Grauturinn á að vera þunnur þegar hann fer inn í ísskáp. Ef hann er það ekki er gott að bæta við vatni/kókosmjólk eftir þörfum.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.