
| 800 g kjúklingalæri eða bringur | |
| salt og pipar | |
| 1 sítróna | |
| 120 ml kjúklingasoð | |
| 2 sætar kartöflur | |
| 1 laukur, skorinn gróflega | |
| 6 hvítlauksrif | |
| 12 sveskjur, skornar í tvennt | |
| 1 epli, skorið niður | |
| ólífuolía | |
| salt og pipar | |
| Kryddblanda: | |
| 2 msk ólífuolía | |
| 1 1/2 tsk kóríander | |
| 1 tsk cumin | |
| 1 tsk paprikukrydd | |
| 2 tsk rifinn sítrónubörkur | |
| 3/4 tsk cayenne pipar | |
| 1/2 tsk kanill | |
| 1 1/2 tsk salt |
Fyrir 4
| 1. | Látið sætar kartöflur, lauk, epli, sveskjur og hvítlauk í ofnfast mót. Hellið ólífuolíu yfir allt, saltið og piprið og blandið öllu vel saman. |
| 2. | Blandið öllum hráefnum fyrir kryddblönduna saman í skál og leggið kjúklinginn þar í. Látið marinerast í kæli í smá stund. |
| 3. | Leggið kjúklinginn hjá grænmetinu og hellið kjúklingasoðinu yfir. |
| 4. | Eldið í 160°c heitum ofni í um 40-50 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og grænmetið farið að mýkjast. Ausið kjúklingasoðinu yfir kjúklinginn af og til á eldunartímanum. |
Leave a Reply