Innihaldslýsing

800 g kjúklingalæri eða bringur
salt og pipar
1 sítróna
120 ml kjúklingasoð
2 sætar kartöflur
1 laukur, skorinn gróflega
6 hvítlauksrif
12 sveskjur, skornar í tvennt
1 epli, skorið niður
ólífuolía
salt og pipar
Kryddblanda:
2 msk ólífuolía
1 1/2 tsk kóríander
1 tsk cumin
1 tsk paprikukrydd
2 tsk rifinn sítrónubörkur
3/4 tsk cayenne pipar
1/2 tsk kanill
1 1/2 tsk salt
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Látið sætar kartöflur, lauk, epli, sveskjur og hvítlauk í ofnfast mót. Hellið ólífuolíu yfir allt, saltið og piprið og blandið öllu vel saman.
2.Blandið öllum hráefnum fyrir kryddblönduna saman í skál og leggið kjúklinginn þar í. Látið marinerast í kæli í smá stund.
3.Leggið kjúklinginn hjá grænmetinu og hellið kjúklingasoðinu yfir.
4.Eldið í 160°c heitum ofni í um 40-50 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og grænmetið farið að mýkjast. Ausið kjúklingasoðinu yfir kjúklinginn af og til á eldunartímanum.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.