Innihaldslýsing

Kexbotn:
200g heilhveitikex mulið
85g brætt smjör
1 tsk flórsykur
Ostakakan:
200g Mascarpone frá MS
2 dl rjómi
250g Ísey jarðarberjaskyr
1 sítróna, safinn og börkurinn
100g flórsykur
1 tsk vanilludropar
5 matarlímsblöð
Sólin hækkar á lofti og vonandi förum við að sjá aðeins meira af vorinu. Þessi dásamlega terta er að mínu mati boðberi hækkandi sólar, bjartsýni og gleði. Svo bragðgóð og falleg. Passar fullkomlega á Páskaborðið eða í fermingarveisluna. Hún er ekki erfið í gerð en smá tíma tekur að útbúa hana en það er fullkomlega...

Leiðbeiningar

1.Botn: Byrjið á því að bræða smjörið, látið mesta hitann rjúka úr. Setjið kexið í matvinnsluvél og myljið smátt. Setjið kexið í skál ásamt bræddu smjörinu og flórsykri og blandið saman þar til blandan lítur út eins og blautur sandur. Setjið bökunarpappír í botninn á 20 cm smelluformi, setjið kexblönduna í formið og þjappið lauslega. Setjið botninn í kæli á meðan fyllingin er gerð.
2.Fylling: Setjið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Setjið mascarpone ostinn í skál og þeytið í smástund þar til hann er farinn að mýkjast. Raspið sítrónubörkinn af sítrónunni og setjið hann saman við. Bætið skyri og flórsykri út í og þeytið þar til blandan er samfelld og kekkjalaus. Setjið til hliðar. Þeytið rjómann, ekki alveg þar til hann er stífþeyttur en nánast. Blandið honum með sleikju saman við ostablönduna. Kreistið vatnið úr matarlíminu og setjið í lítinn pott ásamt safanum úr sítrónunni. Hitið þar til matarlímið er uppleyst og takið þá strax af hellunni. Takið kúfaða matskeið af ostakökublöndunni og setjið út í pottinn með matarlíminu og hrærið saman þar til blandan er samfelld og kekkjalaus. Setjið þá matarlímsblönduna út í ostakökufyllinguna. Með þessari aðferð eru minni líkur á því að matarlímið fari í kekki í blöndunni. Takið botninn úr kæli og hellið ostakökufyllingunni yfir botninn og sléttið úr með skeið. Setjið aftur í kæli. Gerið lemon curd á meðan kakan er í kæli. Best að hún sé í kæli yfir nótt eða að minnsta kosti 4 tíma.
3.Takið botninn úr kæli og hellið ostakökufyllingunni yfir botninn og sléttið úr með skeið. Setjið aftur í kæli. Gerið lemon curd á meðan kakan er í kæli. Best að hún sé í kæli yfir nótt eða að minnsta kosti 4 tíma.
4.Þegar bera á kökuna fram, smyrjið hana þá með lemon curd og skreytið með ferskum jarðarberjum, mér finnst einnig smart að setja nokkur blóm með spari.

Sólin hækkar á lofti og vonandi förum við að sjá aðeins meira af vorinu. Þessi dásamlega terta er að mínu mati boðberi hækkandi sólar, bjartsýni og gleði. Svo bragðgóð og falleg. Passar fullkomlega á Páskaborðið eða í fermingarveisluna. Hún er ekki erfið í gerð en smá tíma tekur að útbúa hana en það er fullkomlega þess virði. Jarðarberjaskyrið og rjómaosturinn spila ótrúlega vel saman með lemon curd og ferskum jarðarberjum. Fágun væri líklega orð sem við gætum líka notað yfir þessa unaðslegu tertu.

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við MS Gott í matinn.

 

 

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.