Innihaldslýsing

1 msk ólífuolía
500 g humar
2 msk smjör
6 hvítlauksrif, pressuð
500 ml rjómi
1 1/2 dl hvítvín (kjúklingasoð)
1 1/2 dl parmesanostur, rifinn
salt og pipar
fersk steinselja, söxuð
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Sjóðið spaghetti samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
2.Hitið olíu á pönnu og léttsteikið humarinn. Takið af pönnunni og geymið.
3.Bætið smjöri út á pönnuna og steikið hvítlaukinn í 30 sek og bætið þá hvítvíni saman við. Látið malla í 2-3 mínútur.
4.Bætið þá rjóma og parmesan saman við og látið malla áfram í nokkrar mínútur, en þó ekki sjóða.
5.Bætið humrinum saman við og smakkið til með salti og pipar.
6.Berið fram með spaghetti og steinselju.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.