
| Sósa: | |
| 180 g sýrður rjómi | |
| 180 g salsa sósa | |
| 1 1/2 tsk taco krydd, t.d. mexikaninn frá Kryddhúsinu | |
| Burrito: | |
| 4 stórar tortillur | |
| iceberg kál niðurskorið | |
| 2 tómatar, skornir í litla bita | |
| 200 g cheddar ostur | |
| 2-3 eldaðar kjúklingabringur, rifnar niður | |
| 1 poki ostaflögur | |
| 1 avacado |
Börnin mín eru hörðustu gagnrýnendurnir þegar kemur að eldamennsku minni. Þessar vefjur fengu hinsvegar fullt hús stiga og eins og sonur minn sagðir þá eru þær "banging"!
| 1. | Blandið hráefnum fyrir sósuna saman í skál. |
| 2. | Setjið 1 msk af sósunni á tortillu og raðið svo káli, kjúklingi, avacado, tómötum, flögum og cheddar ost. Toppið með 1 msk af sósunni og rúllið vefjuna upp. |
| 3. | Endurtakið með hinar tortillurnar og njótið vel. |
Leave a Reply