Innihaldslýsing

Sósa:
180 g sýrður rjómi
180 g salsa sósa
1 1/2 tsk taco krydd, t.d. mexikaninn frá Kryddhúsinu
Burrito:
4 stórar tortillur
iceberg kál niðurskorið
2 tómatar, skornir í litla bita
200 g cheddar ostur
2-3 eldaðar kjúklingabringur, rifnar niður
1 poki ostaflögur
1 avacado
Börnin mín eru hörðustu gagnrýnendurnir þegar kemur að eldamennsku minni. Þessar vefjur fengu hinsvegar fullt hús stiga og eins og sonur minn sagðir þá eru þær "banging"!

Leiðbeiningar

1.Blandið hráefnum fyrir sósuna saman í skál.
2.Setjið 1 msk af sósunni á tortillu og raðið svo káli, kjúklingi, avacado, tómötum, flögum og cheddar ost. Toppið með 1 msk af sósunni og rúllið vefjuna upp.
3.Endurtakið með hinar tortillurnar og njótið vel.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.