

| 4 msk ólífuolia | |
| 250 g sveppir, sneiddir | |
| sjávarsalt | |
| 2 skarlottlaukar, smátt saxaðir | |
| 500 g spaghetti | |
| 120 ml rjómi frá Gott í matinn | |
| 1/2 búnt steinselja, smátt skorin | |
| 1/2 sítróna, safi og fínrifinn börkur | |
| 2 msk smjör frá MS | |
| 1 dl rifinn parmesanostur | |
| svartur pipar |
| 1. | Látið olíu á pönnu og steikið sveppina í um 5 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir og stökkir á báðum hliðum. Saltið og bætið skarlottlauknum saman við og steikið þar til hann er farinn að mýkjast. . |
| 2. | Sjóðið pasta í saltvatni þar til það er farið að mýkjast en ekki orðið alveg mjúkt. Takið pastað með töngum og færið yfir á pönnuna, ásamt 240 ml af pastavatni og rjóma. Látið malla við miðlungshita í nokkrar mínútur þar til sósan er farin að þykkna. |
| 3. | Takið af hitanum og bætið sítrónusafa, sítrónuberki, steinselju og parmesan saman við. |
| 4. | Piprið ríflega og njótið vel. |

Leave a Reply