Innihaldslýsing

4 msk ólífuolia
250 g sveppir, sneiddir
sjávarsalt
2 skarlottlaukar, smátt saxaðir
500 g spaghetti
120 ml rjómi frá Gott í matinn
1/2 búnt steinselja, smátt skorin
1/2 sítróna, safi og fínrifinn börkur
2 msk smjör frá MS
1 dl rifinn parmesanostur
svartur pipar
Fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Látið olíu á pönnu og steikið sveppina í um 5 mínútur eða þar til þeir eru orðnir gylltir og stökkir á báðum hliðum. Saltið og bætið skarlottlauknum saman við og steikið þar til hann er farinn að mýkjast. .
2.Sjóðið pasta í saltvatni þar til það er farið að mýkjast en ekki orðið alveg mjúkt. Takið pastað með töngum og færið yfir á pönnuna, ásamt 240 ml af pastavatni og rjóma. Látið malla við miðlungshita í nokkrar mínútur þar til sósan er farin að þykkna.
3.Takið af hitanum og bætið sítrónusafa, sítrónuberki, steinselju og parmesan saman við.
4.Piprið ríflega og njótið vel.

 

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gott í matinn

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.