
| 120 ml hot sauce t.d. Frank's | |
| 150 g púðursykur | |
| 2 tsk hvítlauksduft | |
| 1 msk sojasósa | |
| 3 tsk hrísgrjónaedik (eða eplaedik) | |
| 4 kjúklingabringur eða 6 kjúklingalæri | |
| salt og pipar | |
| 1 bolli sterkja, t.d. kartöflumjöl eða hveiti | |
| ólífuolía, til steikingar | |
| sesamfræ, ristuð | |
| vorlaukur, saxaður | |
| hrísgrjón |
Þessi uppskrift er fyrir 3-4 en ég mæli með að tvöfalda sósuna og bæta við kjúklingi því þið munuð vilja eiga nóg af þessum kjúklingarétti.
| 1. | Látið hot sauce, púðursykur, hvítlauksduft, edik og 2 msk vatn saman í pott og látið malla við vægan hita eða þar til sykurinn er bráðinn. Takið af hitanum og geymið. |
| 2. | Kryddið kjúklinginn ríflega með salti og pipar á öllum hliðum og veltið honum upp úr sterkjunni. Hitið um 1 dl af olíu á pönnunni og brúnið kjúklinginn í 3-4 mínútur á báðum hliðum. |
| 3. | Þegar kjúklingurinn er orðinn gylltu á lit, lækkið hitann og hellið sósunni yfir og látið kjúklinginn malla í 5-8 mínútur. |
| 4. | Stráið sesamfræjum og vorlauk yfir og berið fram með hrísgrjónum. |
Leave a Reply