120 g smjör, við stofuhita | |
100 g sykur | |
100 g púðursykur | |
1 egg | |
1 tsk vanilludropar | |
1/4 tsk salt | |
80 g OTA haframjöl | |
50 g kókosmjöl | |
100 g hveiti | |
1/2 tsk matarsódi |
Þessar smákökur elska börnin mín að gera því þær eru ofureinfaldar í gerð og ó-svo- bragðgóðar!
1. | Hrærið smjör, sykur og púðursykur vel saman. |
2. | Bætið eggi, vanilludropum og salti saman við og hrærið áfram þar til blandan er orðin létt og ljós. |
3. | Bætið haframjöli, kókos, hveiti og matarsóda saman við og hrærið á lægstu stillingu þar til allt hefur rétt blandast saman. |
4. | Látið deigið á með teskeið á ofnplötu með smjörpappír. |
5. | Bakið við 170°c heitan ofn í 8-10 mínútur eða þar til þær eru farnar að brúnast lítillega. |
Leave a Reply