Við mælum með hágæða kryddum frá Kryddhúsinu.

| 1 tsk kóríander fræ | |
| 2 tsk svört piparkorn | |
| 1/2 tsk fennel fræ | |
| 4 fenugreek fræ | |
| 3-4 þurrkuð chilí | |
| 4 msk olía, t.d. extra virgin Philippo Berio | |
| 200 g laukur, skorinn smátt | |
| 40 g ferskt engifer, rifið fínt | |
| 12 hvítlauksrif, pressuð | |
| 800 g lambakjöt, skorið í bita | |
| 4 msk tómat púrre | |
| 300 ml kókosmjólk, t.d. frá Blue dragon | |
| 1/2 tsk salt | |
| 1/4 tsk garam masala |
| 1. | Setjið kóríander fræin, svört piparkorn, fennelfræ, fenugreek fræ og þurrkuð chilí saman á pönnu og ristið við vægan hita þar til þau fara að ilma. |
| 2. | Setjið kryddin í mortel og malið. Takið til hliðar og geymið. |
| 3. | Setjið olíu í pott og steikið laukinn þar til hann er farinn að taka lit. |
| 4. | Bætið hvítlauk og engifer saman við og steikið í nokkrar mínútur til viðbótar. |
| 5. | Bætið lambakjötinu í pottinn og steikið í 5 mínútur og hrærið reglulega í blöndunni. |
| 6. | Látið tómat púrru, kókosmjólk, kryddblönduna og salt og látið malla í um klukkustund við lágan hita. |
| 7. | Takið lokið af pottinum og látið malla aðeins áfram til að minnka vökvann. |
| 8. | Berið fram með hrísgrjónum og naan. |
Við mælum með hágæða kryddum frá Kryddhúsinu.

Leave a Reply