
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Ásbjörn Ólafsson

| 2 kg kjúklingavængir | |
| salt | |
| 2 msk dijon sinnep | |
| 2 msk sætt sinnep, t.d. frá Bahncke | |
| 5 msk hunang | |
| 2 tsk edik | |
| 2 tsk hot sósa | |
| salt og pipar |
| 1. | Setjið álpappír á ofnplötu og þekið með olíu. |
| 2. | Raðið kjúklingavængjunum þar á og saltið. |
| 3. | Setjið í 220°c heitan ofn og eldið í 20 mínútur og snúið þeim þá við og eldið í aðrar 20 mínútur eða þar til vængirnir eru gylltir á lit og eldaðir í gegn. |
| 4. | Hrærið dijon, sætu sinnepi, hunangi, ediki, hot sósu, salti og pipar saman í stórri skál. Smakkið sósuna til. |
| 5. | Setjið vængina í skálina og veltið þeim upp úr sósunni. |
| 6. | Leyfið þeim að hvíla í sósunni í 5 mínútur og veltið þeim aftur upp úr sósunni og berið fram. |

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Ásbjörn Ólafsson
Leave a Reply