
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.

| 700 g kjúklingalæri, frá Rose Poultry | |
| kókosolía | |
| 2-3 tsk rautt karrý mauk, t.d. frá Blue dragon | |
| 3 dl kókosmjólk, frá Blue dragon | |
| 3 dl rjómi | |
| 6 msk gróft hnetusmjör | |
| 4 msk soyasósa, t.d. Blue dragon | |
| safi úr 1-2 límónum | |
| salt |
| 1. | Skerið kjúklinginn í litla bita. |
| 2. | Hitið kókosolíu á pönnu og steikið kjúklinginn. |
| 3. | Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið 1 msk af kókosolíu á pönnuna. |
| 4. | Hitið karrý á pönnunni og bætið þá kókosmjólk, rjóma, hnetusmjöri, soyasósu og límónusafa út í. |
| 5. | Látið malla við vægan hita í nokkrar mínútur eða þar til sósan hefur þykknað. |
| 6. | Bætið kjúklingnum saman við og hitið. Smakkið til með salti. |
| 7. | Setjið á disk og stráið salthnetum yfir. |

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.
Leave a Reply