Innihaldslýsing

700 g kjúklingalæri, frá Rose Poultry
kókosolía
2-3 tsk rautt karrý mauk, t.d. frá Blue dragon
3 dl kókosmjólk, frá Blue dragon
3 dl rjómi
6 msk gróft hnetusmjör
4 msk soyasósa, t.d. Blue dragon
safi úr 1-2 límónum
salt
Fyrir 3-4

Leiðbeiningar

1.Skerið kjúklinginn í litla bita.
2.Hitið kókosolíu á pönnu og steikið kjúklinginn.
3.Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið 1 msk af kókosolíu á pönnuna.
4.Hitið karrý á pönnunni og bætið þá kókosmjólk, rjóma, hnetusmjöri, soyasósu og límónusafa út í.
5.Látið malla við vægan hita í nokkrar mínútur eða þar til sósan hefur þykknað.
6.Bætið kjúklingnum saman við og hitið. Smakkið til með salti.
7.Setjið á disk og stráið salthnetum yfir.

 

 

 

 

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.