Innihaldslýsing

3-4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
1 krukka pestó með sólþurrkuðum tómötum frá Filippo Berio
1 krukka fetaostur
6-8 döðlur, steinlausar
1 chilí
Þessi kjúklingaréttur sýnir það og sannar að stundum er einfalt langbest!

Leiðbeiningar

1.Setjið kjúklingabringurnar í ofnfast mót.
2.Látið pestó í skál ásamt fetaostinum og stappið gróflega saman með gaffli. Hellið yfir kjúklingabringurnar.
3.Saxið döðlunar og chilí og látið yfir allt.
4.Setjið inn í 180°c heitan ofn í um 40 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.