Innihaldslýsing

4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
sjávarsalt og svartur pipar
3 dl hveiti
2 stór egg
1 msk Heinz Yellow mustard
3 dl brauðrasp (mæli með Panko)
2 msk olía
2 msk smjör
fersk steinselja
sítrónusneiðar
Réttur fyrir 4

Leiðbeiningar

1.Bankið kjúklinginn niður í þunnar sneiðar og kryddið með salti og pipar.
2.Setjið hveitið í skál. Þeytið egg og sinnep saman í skál. Látið brauðrasp á disk.
3.Vinnið með eina kjúklingasneið í einu. Veltið upp úr hveiti og hristið lítillega. Dýfið í eggjahræruna og veltið svo upp úr brauðmylsnunni.
4.Látið kjúklinignn á ofnplötu með smjörpappír og endurtakið með hinn kjúklinginn.
5.Hitið 1 msk af olíu og 1 msk af smjöri á stórri pönnu yfir miðlungs hita. Steikið tvær kjúklingabringur í einu á hvorri hlið, tekur um 10 mínútur. Saltið. Leggið á eldhúsrúllu.
6.Endurtakið með því að setja smjör og olíu á pönnuna og steikja hinar tvær kjúklingabrinurnar þar til fulleldaðar.
7.Berið kjúklinginn fram með steinselju, sítrónu og jafnvel með kartöflumús.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.