Ostakökur eru bara bestar. Það er mín skoðun allavega en það þarf ekkert að vera ostur í henni. Hljómar skrítið en það er hægt að gera dásamlegustu ostakökur í vegan útgáfu og þessi er það svo sannarlega. Snickers er líka best og mér fannst því alveg þjóðráð að blanda þessu saman. Þessi kaka er hinsvegar ekki fljótgerð og hún er pökkuð af orku. Hún er mjög sparileg og hentar vel þegar við ætlum að gera vel við okkur og viljum bjóða upp á eitthvað alveg einstakt.
Uppistaðan í ostakökublöndunni eru kasjúhnetur sem lagðar voru í bleyti sem og Oatly sýrður rjómi. Með smá dúlleríi og góðum blandara er útkoman þessi himneska kaka.
Leave a Reply