Bökur eru hinn fullkomni réttur til að nýta það sem til er í ískápnum hverju sinni. Hér má skipta út spínati fyrir aspas, tómötum fyrir papriku og í raun það sem hugurinn girnist og ímyndunaraflið leyfir.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Örnu
4 egg | |
200 g fetaostur frá Örnu | |
1 laukur, skorinn í sneiðar | |
3 dl 36% rjómi frá Örnu | |
350 g spínat | |
litlir tómatar, skornir í tvennt | |
1 tsk múskat | |
salt og pipar | |
2 msk ólífuolía | |
rifinn ostur frá Örnu |
1. | Gerið botninn og myljið smjörið saman við hveiti og blandið vatni smátt og smátt saman við hnoðið þar til deigið er orðið þétt í sér. |
2. | Setjið í kæli í 15 mínútur. |
3. | Fletjið út deigið og setjið í bökuform. Stingið á deigið með gaffli og bakið í 200°c heitum ofni í 15 mínútur. |
4. | Setjið smjör á pönnu og steikið laukinn þar til hann er orðin gylltur á lit. |
5. | Bætið smjöri á pönnuna og steikið spínatið ásamt hvítlauk í 1-2 mínútur. |
6. | Léttþeytið eggin og og blandið rjóma, kryddum og spínati saman við. |
7. | Stráið lauk í botninn og hellið síðan eggjablöndunni þar yfir og fetaost yfir það. Raðið tómötum þar á. |
8. | Endið á að strá mozzarellaosti yfir allt. |
9. | Setjið í 175°c heitan ofn í 40 mínútur. |
10. | Berið fram með einföldu salati með balsamik ediki. |

Leave a Reply