| 1,5 kg kjúklingur (t.d. læri, bringur, leggir) | |
| 1 laukur, saxaður gróflega | |
| 3 hvítlauksrif, söxuð | |
| 3 gulrætur | |
| 1 steinseljurót | |
| ferskt timían | |
| 1 msk balsamik edik, t.d. frá Filippo Berio | |
| safi af 1/2 sítrónu | |
| 500 ml dökkur bjór | |
| 1 msk kjúklingakraftur, t.d. Oscars | |
| 2 lárviðarlauf | |
| 1 tsk maizena blandað í smá kalt vatn | |
| salt og pipar | |
| fersk steinselja |
Færslan er unnin í samstarfi við Innnes
| 1. | Setjið 2 msk af smjöri í stóran pott. Brúnið kjúklinginn á öllum hliðum við mikinn hita. Takið úr pottinum og geymið. |
| 2. | Setjið lauk og hvítlauk í pottinn og steikið í smá stund við meðalhita. |
| 3. | Bætið smjöri saman við og látið gróflega sneiddar gulrætur og steinseljurót þar í. Steikið í nokkrar mínútur og bætið þá fersku timían saman við ásamt sítrónusafa. |
| 4. | Látið bjór og kjúklingakraft saman við og látið nú malla við vægan hita í 45 mínútur. |
| 5. | Undir lokin bætið maizenblöndunni saman við til að þykkja sósuna. Bara lítið í einu þar til hún er orðin passlega þykk. |
| 6. | Smakkið til með salti og pipar og stráið saxaðri steinselju yfir allt. |
| 7. | Berið fram með tagliatelle pasta eða kartöflumús. |



Leave a Reply