Innihaldslýsing

1 b vegan smjörlíki
, t.d. earth balance
1 b lífrænn hrásykur

1 msk vegan mayo
1 msk útbleytt chiafræ*
1 tsk vanilla

2 ¼ b kókosmjöl

2 ¼ b spelt
, fínt malað
1 tsk vínsteinslyftiduft

1 b smátt skornir vegan lakkrísbitar

½ b vegan súkkulaði, lífrænt
* Útbleytt chiafræ eru 1 hluti chiafræ og 4 hlutar vatn. Gott að eiga þessa blöndu í ísskápnum í krukku því hún geymist vel.

Leiðbeiningar

1.Hrærið smjörlíki, hrásykri, chiafræjum, og vanillu saman í hrærivél þar til létt og loftkennt
 (t.d. 10-15 mín).
2.Bætið þurrefnum út í og hrærið stutt saman, bara um 15 sekúndur eða þar til allt hefur blandast saman
3.Best er að baka úr deiginu þegar það er við stofuhita, ekki þarf að kæla deigið fyrst.Gott er að nota teskeið til að búa til kökur til að raða á ofnplötuna. Fletjið kökurnar smávegis út með fingrunum ef þið viljið flatar kökur, en svo er líka hægt að móta kúlur og þá verða kökurnar hærri.
4.Bakið í forhituðum ofni við 185°C í 5-10 mínútur, eða þar til kökurnar byrja að taka lit. Gott að fylgjast með, fer eftir ofninum hvort þær þurfa bara 5 mín, eða meira. Færið kökurnar yfir á kökugrind til að kólna í smástund áður en þið njótið!

Mæðgurnar

Oft eru notuð egg í smákökudeig til að halda deiginu saman og við vorum velta því fyrir okkur hvað gæti verið sniðugt í staðinn fyrir egg í svona kökur. Stundum er notuð auka olía, eða útbleytt hörfræ eða chiafræ. Og jafnvel aquafaba, sem er þeyttur kjúklingabaunavökvi. Við prófum að nota vegan-mayones í staðinn fyrir egg og það virkaði vel. Deigið varð mjög flott, létt og loftkennt. Vegan mayones fæst í öllum búðum núorðið og er oft til á heimilum grænkera.
Við notuðum lífrænt fíntmalað spelt í þessar kökur og fannst það koma mjög vel út, við mælum með því frekar en hvítu hveiti.
Fleiri girnilegar uppskriftir frá mæðgunum má finna hér.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.