Innihaldslýsing

1 stór sæt kartafla*
1l. vatn
1 laukur*
1 lítill blaðlaukur án græna hlutans*
2 hvítlauksrif*
1 lítil rauð paprika*
1 msk grænmetiskraftur frá Rapunzel
Safi úr 1/2 límónu
Himalayasalt og svartur pipar eftir smekk
1 tsk cummin
1/2 tsk chiliduft
200ml Oatly imat hafra matreiðslurjómi
Fersk steinselja ef vill
*Lífrænt grænmeti - gott úrval í Nettó og Krónunni t.d
Já íslenska sumarið! Það er nú ekki alltaf tuttugu gráður og heiðskírt, því miður! Á köldum sumarkvöldum þegar við förum að skella okkur í föðurlandið, flíspeysuna og buffið og langar í eitthvað heitt og notalegt að borða í fortjaldinu, kallar þessi á mann. Það er hægt að gera hana fyrirfram og setja í brúsa eða...

Leiðbeiningar

1.Byrjið á því að skera sætu kartöfluna í litla bita og saxa rest af grænmetinu. Sjóðið sætu kartöfluna í ca. 15 mín.
2.Steikið grænmetið upp úr kókosolíunni á vægum hita.
3.Þegar sætkartöfluteningarnir eru orðnir ágætlega mjúkir hellið mestu vatninu af pottinum og setjið hann aftur á helluna. Bætið steikta grænmetinu út í pottinn og hellið vatni og kryddi saman við.
4.Sjóðið á vægum hita þar til grænmetið er orðið vel soðið. Ef þið eruð ekki í tímaþröng mæli ég með að láta hana malla lengur.
5.Bætið við kryddum og salti ef ykkur þykir þess þurfa.
6.Maukið súpuna með töfrasprota og hellið svo hafrarjómanum saman við. Leyfið súpunni að hitna að suðumarki en látið ekki sjóða eftir að rjóminn er kominn út í.
7.Berið fram með góðu brauði og pestói t.d.

Já íslenska sumarið! Það er nú ekki alltaf tuttugu gráður og heiðskírt, því miður! Á köldum sumarkvöldum þegar við förum að skella okkur í föðurlandið, flíspeysuna og buffið og langar í eitthvað heitt og notalegt að borða í fortjaldinu, kallar þessi á mann.

Það er hægt að gera hana fyrirfram og setja í brúsa eða ílát og hita upp á staðnum. Bera fram með góðu brauði og áleggi og þá eruði komin með fullkomna útilegu máltíð.

Hún er vegan og lífræn og hentar vel þeim sem eru með einhvers konar óþol. Ég mauka hana með töfrasprota en það er óþarfi ef hann er ekki til á heimilinu.

Færsla og myndir eftir Völlu í samstarfi við Innnes ehf.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.