Þessi færsla er unnin í samstarfi við Ásbjörn Ólafsson
2 kg kjúklingavængir | |
salt | |
2 msk dijon sinnep | |
2 msk sætt sinnep, t.d. frá Bahncke | |
5 msk hunang | |
2 tsk edik | |
2 tsk hot sósa | |
salt og pipar |
Fyrir 4
1. | Setjið álpappír á ofnplötu og þekið með olíu. |
2. | Raðið kjúklingavængjunum þar á og saltið. |
3. | Setjið í 220°c heitan ofn og eldið í 20 mínútur og snúið þeim þá við og eldið í aðrar 20 mínútur eða þar til vængirnir eru gylltir á lit og eldaðir í gegn. |
4. | Hrærið dijon, sætu sinnepi, hunangi, ediki, hot sósu, salti og pipar saman í stórri skál. Smakkið sósuna til. |
5. | Setjið vængina í skálina og veltið þeim upp úr sósunni. |
6. | Leyfið þeim að hvíla í sósunni í 5 mínútur og veltið þeim aftur upp úr sósunni og berið fram. |
Leave a Reply