
Óhefðbundnar sörur en ó-svo-dásamlegar!
| 1. | Stífþeytið eggjahvítur og bætið þá sykri saman við, smátt og smátt. Þegar allur sykurinn er kominn saman við, þeytið í 3 mínútur til viðbótar. |
| 2. | Bætið lyftidufti og muldu Daim varlega saman við. |
| 3. | Látið á bökunarplötu með skeið og bakið í 150°c heitum ofni í um 15 mínútur eða þar til marengsinn er orðinn stökkur að utan. |
| 4. | Smjörkremið: Þeytið eggjarauður þar til þær eru orðnar léttar og ljósar. Bætið þá sírópi rólega saman við. |
| 5. | Bætið þá mjúku smjörinu saman við. |
| 6. | Endið á að hræra muldu Daim og kakó saman við kremið með sleif. |
| 7. | Smyrjið kreminu á botnana og dýfið í brætt rjómasúkkulað. |
| 8. | Geymist í frysti eða kæli. |


Leave a Reply