Styrkt færsla
| 1/2 franskbrauð | |
| 1 poki Dumle karamellur | |
| smjör til steikingar | |
| 2 egg, léttþeytt | |
| kanilsykur (kanill og sykur blandað saman) |
Frá því að ég gerði humarvefjurnar í sjónvarpsþætti Símans fyrir jól hef ég þróað nokkrar útgáfur af þessum frábæra rétti. Ein er eplavefjurnar vinsælu og nú Dumle karamelluvefjur sem bráðna í munni. Þetta er nú einn af vinsælli eftirréttum á mínu heimili og líklega bráðum einnig hjá ykkar fólki. Hlakka til að heyra hvernig ykkur líkaði.
| 1. | Skerið skorpuna af brauðinu og fletjið út með kökukefli svo loftið farið úr brauðinu. |
| 2. | Leggjið 3 Dumle karamellur á hvort brauð og rúllið þétt. |
| 3. | Dýfið í eggjablönduna. |
| 4. | Setjið smjör á pönnu og steikið vefjurnar við meðalhita. |
| 5. | Þegar þær eru orðnar gylltar að lit, takið þá af pönnunni og setjið á disk. |
| 6. | Berið fram með ís og/eða rjóma. |



Leave a Reply