Ofnbökuð ítölsk ostaídýfa
Ofnbökuð ítölsk ostaídýfa
Ofnbökuð ítölsk ostaídýfa

Innihaldslýsing

1 kúla ferskur mozzarella, rifinn
1 1/2 dl parmesaostur, rifinn
200 g Philadelphia rjómaostur
1 tsk ítalskt krydd
1/2 tsk chilikrydd
sjávarsalt
1/2 - 1 box kirsuberjatómatar
1 hvítlauksrif, saxað smátt
ferskt steinselja, söxuð
extra virgin ólífuolía, t.d. frá Philippo Berio
Það er ekki oft sem ég verð orðlaus, en það varð ég svo sannarlega þegar ég tók fyrsta bitann af þessari bragðgóðu ostaídýfu. Ídýfan er frábær sem forréttur, í saumaklúbbinn eða partýið og færir okkur til Ítalíu að minnsta kosti í huganum.

Leiðbeiningar

1.Blandið mozzarella, parmesan, rjómaosti og kryddum saman í skál og hrærið vel. Setjið ídýfuna í ofnfast mót.
2.Látið í 200° heitan ofn og bakið í 15 mínútur eða þar til osturinn er byrjaður að búbbla og orðinn örlítið gylltur á lit.
3.Skerið tómata og hvítlauk niður og blandið saman. Setjið yfir ídýfuna síðustu 5 mínútur eldunartímans.
4.Takið úr ofni og hellið góðri ólífuolíu yfir allt og endið á að strá steinselju yfir.
5.Saltið og kryddið með chilíkryddi og berið fram með ristuðu baquette eða kexi.

Færslan er unnin í samvinnu við Innnes

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.